Hægelduð papriku- og tómatsúpa
Þessi súpa er án allra aukaefna og hentar frábærlega í hreinsun (detox), handa litlum krílum eða til að frysta og kippa með í vinnuna. Svo er um að gera að nota það grænmeti sem er til í ísskápnum.

2 rauðar eða gular paprikur
8 vel rauðir tómatar
1 skalottlaukur
2 hvítlauksrif
3 msk olía, t.d. kókosolía
½ sæt kartafla
3 stórar gulrætur
2 msk krydd án aukaefna, t.d. Herb de provence frá Pottagöldrum
1 dl fersk basilíka ef vill
1-2 dl heimagerð möndlumjólk ef vill (verður kremaðri)
1/2 dl appelsínusafi
6 dl soðið vatn
Salt og pipar eftir smekk
Toppur: pestó, grasker og lárpera
-
Grænmetið er skolað og skorið gróft og sett í eldfast mót og eldað við vægan hita lengi.
-
Ég set það oft á háan hita (250 gráður) í 20 mín og slekk svo á ofninum yfir nótt. Annars við 200 gráður í um klst. eða þar til grænmetið verður brúnleit og lungnamjúkt. Þá er það tekið út og látið kólna.
-
Því næst er það maukað með töfrasprota eða blandara ásamt 6 dl af soðnu vatni, basilíkunni, kryddinu og möndlumjólkinni.
-
Ef þú vilt þynna súpuna setur þú meira vatn.
-
Súpan er borðuð heit og toppuð með einni msk af pestódressingu, 1 tsk af graskersfræjum og vænni sneið af lárperu.