top of page

Dásamlegt detox "pasta" fyrir tvo

Afsakaðu þetta smáræði elsku Ítalía, en stundum þarf bara að nota orðið pasta frjálslega. Vissulega er þetta ekki pasta í orðsins fyllstu merkingu en þegar það þarf að núllstilla kroppinn og taka út dóna á borð við sykur og mikið unna matvöru er gott að eiga töfrabrögð á borð við þessa uppskrift inni. Því einföld og góð hráefni eru alltaf best.

FB_IMG_1639389695474.jpg

1 stór kúrbítur eða tveir minni
1 lífræn sítróna
Góð olívuolía
1/2 dl ristaðar furuhnetur
1 box picollo tómatar
1 dl söxuð fersk basilika  
Sjávarsalt
Svartur pipar
1/2 grænt epli
1 lúka klettasalat

- einnig má bæta við avókadó tenginum ef vill.

  1. Þvoið grænmetið vel. Best er að nota grænmetisskrúbb á kúrbítinn.

  2. "Yddið" kúrbítinn í þar til gerðum yddara. Setjið hann í skál með eldhúspappír og kreistið nokkrum sinnum til að ná vatni úr.

  3. Saltið kúrbítinn - ekki of mikið.

  4. Setjið sítrónuna í sjóðandi vatn í stuttan tíma (ca. 30 sek) til þess að ná vaxi og óhreinindum af berkinum.

  5. Raspið börkinn af hálfri sítrónu yfir kúrbítinn.

  6. Setjið tómatana, basilikuna og hneturnar út á.

  7. Piprið.

  8. Hellið sirka 1 msk af olíu yfir.

  9. Saxið eplið og dreifið yfir.

  10. Berið fram með klettasalati.


Þetta er dásamlega gott hvort sem er í nesti eða kvöldmat. 

bottom of page